Velkomin!
Þekkingarsetur um markaðs- og þjónustumál…en einnig ýmislegt annað
— ooo —
Markaðsfræði og þjónustustjórnun er mitt sérsvið og flest það sem ég fæst við tengist með einum eða öðrum hætti þeim fræðigreinum. Bakgrunnur minn hefur vissulega áhrif en hann má fremur rekja til raunvísinda en félags- eða hugvísinda. Endilega notið það efni sem hér er að finna en farið er fram á að getið sé heimilda samkvæmt venjum og hefðum þar um 🙂
— ooo —
Hér er áhugaverð sýn á markaðsfærslu
Margir tengja markaðsfærslu (marketing) mikið við kynningarstarf en síður við aðra þætti. Þeir sem til þekkja vita að sú tenging er mikil einföldun. Til eru margar skilgreiningar á hugtakinu og eru sumar langar og ítarlegar á meðan aðrar eru styttri og einfaldari. Meðfylgjandi mynd sýnir þau orð eða hugtök sem koma oftast fyrir og byggt á 72 skilgreiningum í samantekt Heidi Cohen. Eins og sést þá snýst faglegt markaðsstarf mjög mikið um viðskiptavininn, vöruna/lausnina og þjónustu.
Í samantekt Cohen segir: “While the definitions of marketing vary based on perspective, they generally refer to engaging a target market of consumers or other users to ultimately sell a product and hopefully to maintain a relationship beyond the purchase.”
Sett í fræðilegt samhengi má segja að markaðsfærsla snúist um STP marketing, Value proposition og Relationship marketing.
Nú er bara spurningin hver fókusinn er hjá markaðsfólki!
— ooo —