Yfirlit yfir nám og störf
Ég hef verið háskólakennari frá 1994, fyrst sem stundakennari samhliða stjórnunarstörfum í atvinnulífinu en frá 2000 hefur háskólakennsla og rannsóknir verið mitt aðal starf. Fór óhefðbundna leið í starfið en ég hef samfellt verið í fullu starfi á vinnumarkaði frá 1977.
Námsferill
- Viðskiptafræði Ph.D., áhersla á markaðsfræði og þjónustustjórnun, Háskóli Íslands, 2010. Lokaritgerð: Markaðs- og þjónustuáhersla í opinbera geiranum.
- Viðskiptafræði M.Sc., áhersla á markaðsfræði, stjórnun og rannsóknaraðferðir. Háskóli Íslands, 2001. Lokaritgerð: Viðhorf viðskiptavina sem árangursmælikvarði.
- Alþjóðamarkaðsfræði, B.Sc., áhersla á markaðsgreiningu og stefnumótun. Tækniháskóli Íslands, 1995. Lokaritgerð: Stefnumótun fyrir fyrirtæki/stofnun.
- Iðnaðartæknifræði, B.Sc., áhersla á nýsköpun, vöruþróun og verkefnastjórnun. Tækniháskóli Íslands, 1994. Lokaverkefni: Aukin arðsemi í sjávarútvegi.
- Iðnrekstrarfræði, áhersla á stefnumótun og markaðsfræði. Tækniháskóli Íslands, 1992. Lokaverkefni: Viðskiptaáætlun fyrir fyrirtæki/stofnun.
Starfsferill
- Háskóli Íslands frá 1998: Stundakennari 1998, lektor 2001, dósent 2005 og prófessor 2022.
- Thor ehf frá 2008: Hef frá 2000 veitt fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf á sviði stefnumótunar, markaðs- og þjónustumála. Stofnandi og framkvæmdastjóri Thor ehf sem hefur starfað frá 2008.
- Ráðgjöf 2000-2008: Sjálfstætt starfandi ráðgjafi (stefnumótun, markaðs- og þjónustumál).
- Strætisvagnar Reykjavíkur 1995-2000: Forstöðumaður markaðs- og þróunarsviðs
- Tækniháskóli Íslands/Háskólinn í Reykjavík 1994-2003 og 2008-2011: Stundakennsla við Tækniháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
- Umgjörð ehf 1994-1995: Viðskipta- og stjórnunarráðgjafi.
- Krísuvíkursamtökin 1991-1994: Ráðgjafi og um tíma framkvæmdastjóri.
- SÁÁ 1987-1990: Ráðgjafi að Sogni Ölfusi.
- Áburðarverksmiðja ríkisins 1977-1987: Vinnuvélastjórn og almenn verkamannastörf.
Stjórnunarstörf í Háskóla Íslands
- Forstöðumaður og stjórnarformaður Rannsóknarmiðstöðvar um markaðs- og þjónustufræði (Center of Marketing and Service Management, CMS) frá 2009 til nú.
- Ritstjóri (ásamt fleirum) Tímarits um viðskipti og efnahagsmál frá 2016 til nú. Formaður ritstjórnar frá 2022.
- Varamaður í stjórn Endurmenntunar Háskóla Íslands frá 2024 til nú.
- Formaður stjórnar Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála (RMF) frá 2023 til nú.
- Í ráðstefnunefnd (formaður) Viðskipti og vísindi, 11.-15. mars 2024.
- Í ráðstefnunefnd (formaður) Viðskipti og vísindi, 14.-17. mars 2023.
- Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði V (í vinnslu 2024).
- Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði IV, Háskólaútgáfan, 2023.
- Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði III, Háskólaútgáfan, 2022.
- Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði II, Háskólaútgáfan, 2021.
- Ritstjóri (ásamt Gylfa Dalmann og Runólfi Smára) bókarinnar Rannsóknir í viðskiptafræði I, Háskólaútgáfan, 2020.
- Formaður meistaranámsnefndar frá 2020-2022.
- Forstöðumaður MS náms í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum 2003-2005, 2013-2014, 2020-2022 og frá hausti 2023.
- Forstöðumaður MS náms í viðskiptafræði 2020-2022.
- Forstöðumaður MS náms í þjónustustjórnun frá 2018-2022 og frá hausti 2023.
- Formaður grunnnámsnefndar 2005-2012 og 2015-2017.
- Forstöðumaður BS-M línu í grunnnámi (áhersla á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti) 2001-2012 og 2015-2017.
- Í stjórn Viðskiptafræðistofnunar frá 2006-2013, formaður frá 2008.
- Í stjórn MBA námsins 2005-2013, formaður 2007-2013.
- Í stjórn BSV náms (nám samhliða starfi) 2007-2013, formaður 2008-2013.
- Í stjórn rannsóknarmiðstöðvar um alþjóðaviðskipti 2007-2013.
- Formaður kennslumálanefndar Félagsvísindasviðs 2009-2011.
- Í kennslumálanefnd Háskólaráðs 2009-2011.
- Formaður stjórnar ENSÍM, endurmenntun á vegum deildar, 2007-2008.
- Formaður markaðs- og samskiptanefndar Háskólaráðs 2004-2007.
- Seta í heildarstefnuhóp í tengslum við stefnumótun Háskóla Íslands 2006-2011.
- Seta í ýmsum vinnuhópum á vegum rektors og sameiginlegrar stjórnsýslu 2001-2007.
Sjá hér nánara yfirlit yfir stjórnunarstörf í þágu Háskóla Íslands
Innlend og alþjóðleg tengsl
- Formaður dómnefndar ÍMARK um markaðsfyrirtæki ársins 2011, 2012, 2013, 2014, 2016, 2018 og 2020.
- Félagi í AMC (Academy of Marketing Science) frá 2009.
- Félagi í AM (Academy of Marketing) frá 2003.
- Félagi í AMA (American Marketing Association) frá 2003
Seta í stjórnum
- Stjórnarformaður Thor ehf frá 2008
- Í stjórn Reykjabúsins ehf frá 2005
- Í stjórn Ísfugls ehf frá 2012
- Í stjórn/stjórnarformaður Ferðafélaga ehf frá 2017
- Í stjórn Hi-hostel Iceland (Farfuglar ses) 2014-2023, stjórnarformaður frá 2020
- Í varastjórn Stefnis 2010-2022
- Í stjórn IP-fjarskipta ehf 2009 (tilnefndur af Samkeppniseftirlitinu)
- Í stjórn Vífilfells 2008-2009
- Í stjórn Krísuvíkursamtakanna 1995-2005