Rannsóknarmiðstöð um markaðs- og þjónustufræði

Rannsóknarmiðstöð um markaðs- og þjónustufræði, RMÞ, (Center of Marketing and Service Management – CMS) er vísindaleg rannsóknastofnun sem starfrækt er af Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands (School of Business, University of Iceland) en henni var komið á fót árið 2009. Forstöðumaður er Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson, prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Rannsóknarmiðstöðin er vettvangur fyrir fræðilegar og hagnýtar rannsóknir á sviði markaðs- og þjónustufræða. Markmiðið er að efla þekkingu á fræðasviðinu með því að vinna að vönduðum rannsóknum og miðla niðurstöðum á viðeigandi vettvangi. Ennfremur að þjóna íslensku atvinnulífi með vönduðum rannsóknum er tengjast fyrirtækjum og stofnunum og starfsumhverfi þeirra.

Hlutverk rannsóknarmiðstöðvarinnar er að:

  1. Stunda fræðilegar rannsóknir er tengjast stefnumótun markaðsmála, vörumerkjastjórnun, markaðshneigð, siðferðilegum álitaefnum í markaðsstarfi, kauphegðun, þjónustustefnu, þjónustuþróun, þjónustuumhverfi og þjónustugæðum.
  2. Stunda hagnýtar rannsóknir er tengjast markaðsgreiningu, vörumerkjagreiningu, atvinnuvegagreiningu, samkeppnisgreiningu, þjónustugreiningu og þjónustugæðum.
  3. Vera bakland kennslu í markaðs- og þjónustufræðum og eiga þátt í þjálfun nemenda í rannsóknum á sviðinu.
  4. Sinna tengslum og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði markaðs- og þjónustufræða.
  5. Standa fyrir viðburðum, s.s. málfundum og ráðstefnum á sviði markaðs- og þjónustufræða.

Rannsóknarmiðstöðin hefur sjálfstæða strauma sem gerir það mögulegt að hægt er að sinna t.t.l. ólíkum viðfangsefnum innan fræðasviðsins.

Forstöðumaður er Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson, prófessor við Háskóla Íslands, th@hi.is

Ráðgjafaráð 2026

  • Magnús Haukur Ásgeirsson, aðjunkt í ferðamálafræði við Háskóla Íslands
  • Dr. Runólfur Smári Steinþórsson, prófessor í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands

Útgefið og/eða birt efni (ekki tæmandi listi)

Gögn, gagnasöfn og/eða óbirt efni

  • Ímynd og þjónusta á fjármálamarkaði. Reglulegar mælingar frá 2006 til 2026 á ímynd, og síðar þjónustu, fyrirtækja á fjármálamarkaði (banka).
  • Ímynd og kauphegðun á matvörumarkaði. Reglulegar mælingar frá 2014 á ímynd og kauphegðun á matvörumarkaði.

Ráðstefnur, verkefni og viðburðir

  • Þjónustumenning sem lykill að árangri. Í tengslum við Viðskipti og vísindi 2026 og í samstarfi við Stjórnvísi.
  • Þjónustustjórnun og markaðsfræði. Í tengslum við Viðskipti og vísindi 2026.
  • Þjónustustjórnun – hagnýt lykilatriði. Námskeið í samstarfi við Endurmenntun HÍ 12. og 13. mars 2026. Kennarar: Magnús Haukur Ásgeirsson, Runólfur Smári Steinþórsson og Þórhallur Örn Guðlaugsson.
  • How Financial Accounting Screws Up HR. Fyrirlestur Peter Cappelli, prófesors við Wharton háskóla 25. ágúst 2023.